Risotto með pestó og kartöflum

Það er hægt að finna margar spennandi samsetningar í ítalska eldhúsinu. Hér er ein frábær, risotto með fersku basilpestó og kartöflum.

  • 4 dl risotto-grjón (arborio eða carnaroli)
  • 6-8 kartöflur
  • 1,5 dl kjúklingasoð
  • 1 laukur, saxaður
  • 2 dl nýrifinn parmesanostur
  • 2 msk smjör
  • ólífuolía
  • salt og pipar

Pestó

  • 2 lúkur basillauf
  • 2 msk furuhnetur
  • 2 msk möndlur
  • 1,5 dl ólífuolía
  • salt og pipar

Byrjið á því að útbúa pestó samkvæmt leiðbeiningum sem má finna hér en þó með hráefnislistanum hér að ofan. Í þessari útgáfu blöndum við saman möndlum og furuhnetum og sleppum líka ostinum þar sem að hann kemur út í réttinn á lokastigi.

Flysjið kartöflurnar. Sjóðið, skerið niður í bita og geymið.

Hitið 2-3 msk af olíu á pönnu og mýkið laukinn. Bætið grjónunum út á og hrærið í með sleif í 2-3 mínútur.

Byrjið síðan að bæta kjúklingasoðinu út á pönnuna. Eina ausu í einu. Látið grjónin malla á miðlungs hita, ef of mikill hiti er á pönnunni gufar vökvinn bara strax upp. Hrærið reglulega í með sleifinni.

Þegar um ein ausa af soði er eftir bætið þið pestóinu og kartöflunum saman við ásamt síðasta soðinu. Leyfið því að gufa upp.

Bætið parmesanostinum og smjörinu saman við. Blandið vel saman og berið strax fram með auka nýrifnum parmesan-osti.

 

Deila.