Donnafugata Sedara 2009

Sedara er sikileyskt rauðvín úr þrúgunni Nero d’Avola frá vínhúsinu Donnafugata. Nero d’Avola er meginrauðvínsþrúga Sikileyjar.

Þetta er mildur Nero og bjartur, ávöxturinn berjamikill, svolítið kryddaður með plómu og bláberjasultu í nefi, vínið er þykkt og þétt, ágætlega matvænt. Gott með pastasósum með kjöti og tómötum s.s. lambakjöts-ragú.

2.332 krónur

 

Deila.