Adobe Chardonnay Reserva 2014

Bodegas Emiliana,  er einn stærsti framleiðandi lífrænt tæktaðra vína í heiminum, þar á meðal Adobe-línunnar, en alls ræktar vínhúsið vínvið lífrænt á tæplega þúsund hektörum. Suðrænir ávextir í nefi, ferskjur, fíkjur, sætur greipávöxtur og melónur, ungt og heillandi, ferskt, bjart með góðri sýru og fínlegum ávexti. Sumarvín fyrir grillaðan fisk með sítrónu kreystri yfir.

1.999 krónur. Frábært hlutfall verðs og gæða og fær vínið hálfa auka stjörnu fyrir það.

Deila.