Þegar vín eru annars vegar stendur skammstöfunin yfirleitt GSM fyrir þrúgurnar Grenache, Syrah og Mourvédre. Þær eru allar mikið notaðar í suðurhluta Frakklands og ekkert nýtt að þeim sé blandað saman. Það voru hins vegar Ástralir sem tóku upp á því að markaðssetja þennan þrúgukokteil sem GSM og fleiri eru nú farnir að taka þann sið upp. Það á til dæmis við um franska vínhúsið Vidal-Fleury sem hefur leikið sér að skammstöfuninni og framleiðir þrjú GSM-vín, rautt, hvítt og rósa.
Fallega rauðblátt, skógarber, villt jarðarber, krækiber lyng og timjan í nefi, Þurrt, svolítið tannískt, kryddaður berjaávöxtur. Virkilega fínt matarvín.
2.299 krónur. Frábær kaup.