Mixtus Shiraz-Malbec 2014 BIB

Mixtus-vínin frá argentínska vínhúsinu Trivento draga nafn sitt af því að í þessari línu eru ávallt tveimur þrúgum parað saman, í þessu tilviki Shiraz og Malbec.

Þetta er hið ágætasta kassavín, töluverður rauður ávöxtur, rifs og kirsuber, örlítið kryddað, mjúkt, ávöxturinn sætur í munni.

5.298 krónur eða sem samsvarar 1.325 krónum á venjulega flösku. Mjög góð kaup, hálf auka stjarna fyrir hlutfall verðs og gæða.

Deila.