Vín frá Cahors í suðvesturhluta Frakklands hafa ekki sést oft hér á landi. Þetta er þó eitt af elstu víngerðarsvæðum Frakklands og upprunasvæði Malbec-þrúgunnar sem flestir tengja nú við Argentínu. Vínin frá Cahors voru nær fallin í gleymsku um miðja síðustu öld en eftir mikið uppbyggingarstarf eru þau nú farin að sækja í sig veðrið á nýjan leik.
Cahors-vínin hafa oft verið kölluð „svörtu vínin“ vegna þess hve dökk þau eru og þetta vín er vissulega ansi dökkfjólublátt. Í neifnu svartur ávöxtur, plómur, krækiber, sveskjur, þar er nokkuð sýrumikið, tannískt og hefur ágæta lengd. Fínt matarvín.
Fæst einungis í fríhöfninni í Leifsstöð. 1.699 krónur. Mjög góð kaup.