Maycas del Limari Pinot Noir 2013

maycas del limariLimari er eitt af nýrri víngerðarsvæðum Chile og eitt af þeim svæðum sem strax getur verið skynsamlegt að leggja á minnið. Það er um 400 kílómetra norður af Santiago og þó svo að haldið sé í norður, nær miðbaug, er loftslagið svalara og þurrara en á svæðunum nær höfuðborginni. Kjöraðstæður fyrir norður-evrópskar þrúgur – og það á svo sannarlega við um Búrgúndarþrúguna Pinot Noir.

Nokkuð dökkt af Pinot að vera, í nefi eru rifsber fyrirferðarmikil, sæt og þroskuð, einnig dekkri betri ber, út í kirsuber, flott uppbygging, vínið hefur flotta og vel strúktúreraða uppbyggingu, smá míneralískt, góð tannín. Klassavín, nýjaheimsávöxtur en svolítið franskur strúktúr.

90%

2.799 krónur. Frábær kaup. Vín fyrir t.d. önd, kalkún og hvers vegna ekki hamborgarhrygg.

  • 9
Deila.