Sumarið er loksins komið og nú fara brugghúsin að keppast við að setja sumarbjóra á markað. Árstíðarbundnir bjórar hafa farið vel í landann hingað til og það er spennandi að sjá á hverju menn taka upp á í sumar.
Það hefur komið mér á óvart hversu rög sum íslensk brugghús hafa verið í IPA undanfarin ár. Vinsældir bjórstílsins eru miklar og bjórar eins og Úlfur, Punk IPA og All Day IPA njóta mikilla vinsælda. Fyrir nokkrum árum sendi Ölvisholt frá sér Röðul, sem var hinn fínasti IPA. Það er því fagnaðarefni að sumarbjór Ölvisholts er „Session IPA“.
Session IPA er tiltölulega nýtt fyrirbæri og nýtur mikilla vinsælda vestanhafs. Hvenær stíllinn fæddist er deilumál, hægt er að segja að Bretland var löngu á undan Bandaríkjunum að brugga áfengislitla humlaða bjóra en vinsældirnar eru mestar ímBandaríkjunum auk þess sem „Session“ nafnið er mikið notað. Til þess að flokkast sem „Session IPA“ verður bjórinn helst að vera undir 5% í áfengi og er tilgangurinn að fá sér marga þannig í röð án þess að enda á hausnum. Founders menn gengu meira segja svo langt að hafa eftir sér að þeir hafi bruggað All Day IPA, sem er „Session IPA“, til þess eins að geta keyrt heim til sín. Við mælum þó engan veginn meðþannig hegðun.
Þrátt fyrir að „Session IPA“ sé skemmtilegt fyrirbæri að þá verður að segja að mörkin á milli „Session IPA“ og „Pale Ale“ eru ákaflega óljós.
Það sem gerir Forseta áhugaverðan er að hann líkist frændum sínum sem eru kenndir við New England, en þar um slóðir þá sérstaklega í Vermont og Massachussets er ósíað Pale Ale og IPA í mikilli tísku. Meira er verið að stíla inn á bragð og jafnvægi heldur en sjálfa beiskjuna. Omnipollo frá Svíþjóð hafa einnig verið boðberar svipaðra bjóra.
Líkt og frændur sínir að þá er Forseti með heljarinnar ávaxtakeim. Þá ber helst að nefna ananans, sítrus- og suðræna ávexti. Beiskjan er til staðar en þó í jafnvægi. Hann er afar auðveldur, svalandi og ekki lítið mál að „stúta“ nokkrum Forsetum í röð, eins undarlega og það hljómar. Ef eitthvað má setja út á að þá ber að nefna að örlítill diacetyl keimur er af bjórnum, en kemur lítið að sök. Ölvisholti til varnar að þá er þetta ekki eini íslenski IPA-inn sem kom út á þessu ári sem ég hef greint keim af diacetyl í. Engu að síður er Forseti góður bjór og afar skemmtilegt afbrigði af „Session IPA“. Einnig er gaman að Ölvisholt hafa séð ástæðu til að hafa tvo miða, bæði kvenkyns og karlkyns forseta. Það er gaman, sérstaklega í ljósi forsetaembættisins og jafnréttismála.
Þess má einnig geta að stutt er síðan Ölvisholt eignaðist nýja eigendur. Eitthvað er verið að taka til í rekstrinum og áhugavert að sjá hvað kemur næst. Á undan Forseta „frumsýndu“ þeir bjórinn Sleipni Pale Ale á bjórhátíðinni á Kex en ósíaða útgáfan á lokadeginum þar kom stórvel út.