Zanni Valpolicella 2014 BIB

Zanni Valpolicella er kassavín frá einu vinsælasta vínræktarsvæði Ítalíu og er meginþrúgan í þessu rauðvíni Corvina. Vínið hefur ljósleitan rauðan lit, létt og mild angan þar sem kirsuber og rauð ber eru í forgrunni, örlítið kryddað, svolítið grænt. Það er milt og létt, tannin ekki áberandi og sýra fersk.

60%

6.699 krónur fyrir kassann eða sem samsvarar um 1.675 miðað við 75 cl flösku. Með ljósu kjöti. Ágætt að bera fram örlítið kælt.

  • 6
Deila.