Vínhúsið Allegrini er með þeim virtari á Veneto-svæðinu og þekkt ekki bara fyrir Valpolicella og Amarone-vínin sín. Tvö af toppvínunum þeirra La Grola og La Poja koma frá sömu hæðinni, sem ber heitið La Grola og samkvæmt goðsögninni er þetta sá staður þar sem að meginþrúga héraðsins sem heitir Corvina var fyrst ræktuð. Giovanni Allegrini festi kaup á þessari hæð árið 1979 en vínekrurnar sem þekja hana nema um 30 hektörum. Þarna eru ræktaðar Corvina, Syrah og Oseleta.
Vínið er mjög dökkt og djúpt á lit, í nefinu kemur fyrst kryddaður, þroskaður kirsuberjasafi, vanilla, þarna er líka angan sem minnir á zabaione (eggjarauður og sykur) og nýbakaðar gyðingakökur sem rennur saman við dökkan ávöxtinn. Eikin er nokkuð áberandi, tannín kröftug og sýran fersk.
3.590 krónur. Frábær kaup.
-
9