Spænsku hvítvínin eru svo sannarlega farin að ryðja sér til rúms hér á landi líkt og víðar og stöðugt fleiri sem uppgötva hversu góð þau geta verið. Það hefur orðið sannkölluð bylting í spænskri hvítvínsgerð á síðasta áratug og þrúgur á borð við Viura, Verdejo og Albarino skríða víða upp vinsældalistana.
Þetta hvítvín frá Rioja-vínhúsinu El Coto er hreint Viura vín. Fölgult á lit með suðrænum ávexti í nefi, ferskjur, þroskaðar perur og sæt melóna. Ferskt og skarpt með þægilegri sýru.
70%
1.599 krónur. Virkilega góð kaup. Hörkuvín fyrir verðið.
-
7