Montes Alpha er lína af vínum frá Aurelio Montes sem endurspeglar margt það besta í víngerð Chile. Vínin hafa tekið nokkrum breytingum í gegnum árin eftir því sem að nýjar ekrur og svæði koma til sögunnar auk þess sem stíll víngerðarinnar er í stöðugri þróun. Alpha Chardonnay er þannig með árunum að verða ferskari, eikin hófstilltari.
Eikin er samt vissulega ennþá til staðar en hún er frábærlega samofin við suðrænan ávöxtinn, í nefi sítrus, ananas, ástaraldin, reykur og sæt vanilla Vínið hefur þykka áferð, ferskt en líka feitt og rjómamjúkt. Mikið vín.
90%
2.999 krónur. Frábær kaup.
-
9