Montes Alpha Cabernet Sauvignon 2013

img_2794Árgangurinn 2013 er annar árgangurinn af Montes Alpha Cabernet sem er ræktaður með nýrri aðferð.  Frá og með 2012-árganginum var áveita á ekrurnar skorin nær alveg niður. Þessi aðferð, sem kölluð er „dry farming“  hefur m.a. í för með sér að ræturnar teygja sig enn lengra niður, berjaklasarnir verða minni og  hlutfall þrúguhýðis á móti þrúguávexti fer úr 12% í 37%. Og eins og við erum nú farin að sjá, vínið verður bara betra.

Það hefur dökkrauðan lit með bláum tónum, eikin er áberandi í nefi, sætt mokkakaffi, tóbakslauf, vindlakassi í bland við þykkan sólberja- og kirsuberjaávöxt, kröftugt, tannískt og mikið. Flott vín.

90%

2.999 krónur. Frábær kaup. Með nauti, önd og mildri villibráð.

  • 9
Deila.