Don Melchor 2007

img_2823Allt frá því að fyrsta Don Melchor-vínið leit dagsins ljós árið 1988 hefur það verið ekki bara eitt besta Cabernet Sauvignon-vín Chile heldur einnig eitt af merkari Cabernet-vínum sem almennt eru framleidd. Nánar um þetta merka vín má lesa með því að smella hér.

Tveir árgangar af Don Melchor eru nú fáanlegir í vínbúðunum og þetta eru tveir af þeim betri sem hafa verið framleiddir, 2006 og 2007, hver með sinn karakter.

2007 er tuttugu ára afmælisvín Don Melchor, nær hreint Cabernet Sauvignon með örlítilli viðbót af Cabernet Franc. Vínið er mjög dökkt, svarfjólublátt, ungt og kröftug, ávöxturinn í nefi einkennist af dökkum, þroskuðum berjum, bláberjum og sólberjum, vínið er kryddað, míneralískt og eikin svífur yfir vötnunum, rist og vanillutónar.

 

100%

7.999 krónur. Hverrar krónu virði. Má vel geyma í að minnsta kosti fimm ár í viðbót. Vín sem ætti að umhella um hálftíma til klukkutíma áður en það er borið fram.

  • 10
Deila.