Chateau la Bridane er vínhús eða Chateau í Saint-Julien á Medoc-skaganum í Bordeux. Þett er ekki stórt vínhús á mælikvarða héraðsins ekrurnar telja „einungis“ 15 hektara og hafa verið í eigu sömu fjölskyldunnar í 300 ár eða frá því að þær voru færðar úr eigu kirkjunnar í einkaeigu í kringum frönsku byltinguna líkt og raunin var um allar eignir kaþólsku kirkjunnar. Þetta er vel gert og fínt Saint-Julien, Cabernet er áberandi mikil sólber og sedrusviður, vínið kröftug og ágengt, nokkur sýra, aggressív, hástemmd tannín, það er ungt og titrandi, þarf tíma eða umhellingu.
80%
4.299 krónur. Góð kaup.
-
8