Trapiche Gran Medalla Malbec 2014

Trapiche er stærsta og eitt elsta vínhús Argentínu og hefur verið leiðandi á mörgum sviðum þau 130 ár sem það hefur starfað og að mörgu leyti dregið vagninn ásamt hinum risanum, Catena-Zapata, í að koma argentínskum vínum á kortið alþjóðlega á síðustu árum. Eins og gefur að skilja er Malbec-þrúgan áberandi í úrvalinu hjá Trapiche og Gran Medalla er eitt af toppvínunum, þrúgurnar koma frá einni ekru af svæðinu Uco, sunnarlega í Mendoza, sem er með bestu ræktunarsvæðunum. Og það sem meira er – vínið hefur lækkað í verði um einar þúsund krónur frá því að við fjölluðum um það síðast!

Þetta er mikið vín, dökkfjólublátt, heitt,  krækiber og bláber, sultað í bland við blóm, ekki síst rósir, eikin er áberandi, örlítið sviðin, gefur af sér vanillu, vínið í munni þykkt og feitt en nær þó að halda góðum ferskleika. Frábært vín.

100%

2.999 krónur. Þúsund krónum ódýrara en í fyrra, sem gefur þessu frábæra víni hálfa stjörnu til viðbótar. Umhellið.

  • 10
Deila.