Dark Horse er eitt af mörgum vínhúsum í eigu hinnar kalifornísku Gallo-fjölskyldu, sem er einhver umsvifamesti vínframleiðandi heims. Dark Horse vínin er framleidd í Modesto undir forystu víngerðarkonunnar Beth Liston og er markmið hússins að framleiða djörf og kraftmikil vín. Zinfandel er þrúga sem að getur tekið á sig margar myndir en best er hún þegar að hún fær að sýna Kaliforníukraftinn sem í henni býr. Dark Horse er vín með dökkum og djúpum lit, út í fjólublátt, ávöxturinn er sömuleiðis dökkur og heitur, sultuð ber og plómur, dökkt súkkulaði, leður og sætur viður sem umlykur mjúkan og þykkan ávöxtinn.
80%
2.199 krónur. Frábær kaup. Þetta er mikið vín fyrir þetta verð. Með BBQ-grillkjöti.
-
8