Contino Reserva 2017

Contino sem er hluti af Cune-grúppunni er ein af goðsögnum Rioja-héraðsins á Spáni. Contino var fyrsta einnar ekru Rioja-vínið er það leit dagsins ljós árið 1973 og hefur síðan verið eitt af forystuvínunum í flokki nýbylgju-Rioja-vína. Tunnurnar sem vínið liggur á eru notaðar og eikin er bæði amerísk og frönsk, stíllinn er fágaður og ferskur. Ávöxturinn dimrauður, kirsuber og brómber, sæt krydd og vanilla, þétt, svolítið stíft, sýrumikið. Umhellið því 1-2 tímum fyrir neyslu og það mýkist vel, geymið gjarnan í nokkur ár, þetta vín þolir alveg 10 ár í kjallaranum. Þrúgublandan er fyrst og fremst Tempranillo (85%) en nokkuð hátt Graciano-hlutfall (10%) gefur karakter.

100%

4.799 krónur. Frábær kaup. Með lambi, nauti og hreindýri.

  • 10
Deila.