Baron de Ley Tres Vinas 2019

Tres Vinas er hvítvín frá vínhúsinu Baron de Ley sem dregur fram hið klassíska í hvítvínsgerð Rioja-héraðsins. Nafnið vísar til þess að í víninu eru notaðar hinar þrjár hefðbundnu þrúgur sem leyfilegt hefur verið að nota í Rioja, það er Viura, Malvasia og Garnacha Blanco. Fyrir nokkrum árum var auk þess heimilað að nota nokkrar alþjóðlegar þrúgur s.s. Chardonnay og Sauvignon Blanc. Þær er hins ekki að finna hér. Þá er vínið látið liggja á eikartunnum í ár eftir að víngerjuninni lýkur líkt og lengi var raunin með nær öll hvítvín svæðisins. Þetta gefur víninu meiri dýpt og þroska.

Þótt vínið sæki í hið hefðbundna hefur stíll þess þróast nokkuð frá því að það kom fyrst, eikin er ekki eins áberandi, stíllinn er ferskari, léttari og bjartari. Vínið er gullið á lit með þykkum, sætum suðrænum ávexti í nefi, appelsínubörkur, sæt límóna, ferskjur og ananas, eikin kemur með mjúka vanillu og smjör, ferskt og sprækt í munni með mikla mýkt.

90%

3.199 krónur. Frábær kaup. Með humarsúpu, með graflax, með kalkún.

  • 9
Deila.