Arzuaga La Planta 2021

La Planta er Tinto Fino (Tempranillo) rauðvín úr smiðju vínhússins Bodegas Arzuaga, sem er að finna í héraðinu Ribera del Duero. Það var stofnað árið 1993 af Arzuaga Navarro fjölskyldunni sem keypti ekrur við hlið Vega Sicilia, þekktasta vínhúss Spánar.

Bestu víninin frá Arzuaga eru þung og mikil Ribera-vín í klassískum stíl en fjölskyldan hefur jafnframt sett á markað vínið La Planta sem er ungt rauðvín í léttari og ávaxtaríkari stíl, það er smávægileg eik til staðar en hún er ekki áberandi. Þarna er fyst og fremst dimmrauður ávöxtur, kirsuber, þurrkaðar kryddjurtir, þurrt með ferskri sýru. 

70%

3.399 krónur. Góð kaup.

  • 7
Deila.