Vínhúsið Carmen í Chile var stofnað um miðja nítjándu öld og hefur löngum verið með helstu framleiðendum landsins og á nú ekrur á flestum helstu ræktunarsvæðum landsins.
Þetta er ungt og ódýrt Cabernet Sauvignon, framleitt svolítið í þeim stíl sem Bandaríkjamarkaði líkar svo vel við. Opinn og sætur ávöxtur, mjúk áferð. Um flest dæmigerð fyrir vín úr þessari þrúgu frá Chile, Áberandi sólber í nefi, svolítið krydduð með innslagi af myntu og súkkulaði.
1.899 krónur. Ágætis kaup.