Búrgundarþrúgan Pinot Noir unir sér ekki alls staðar en á Nýja-Sjálandi virðist loftslagið eiga vel við hana. Þetta rauðvín er frá Marlborough svæðinu á Suður-Eyju.
Litur vínsins eru fjólublár, nokkuð ljós í nefi kryddaður rauður ávöxtur, rifsber, kirsuber og kanilstöng, dökkt, smá jörð. Mjúkt, létt og þykkt í munni með mildri sýru. Það er smá eik þarna en þetta er fyrst og fremst ávaxtadrifið vín. Vín með kjúklingaréttum eða jafnvel steiktum eða grilluðum laxi.
2.699 krónur.