Þessi Cosmo útgáfa sem þeir Raul og Alex á Sushi Samba settu saman fyrir okkur byggir á sama konsepti og t.d. Engifer Cointreaupolitan nema hvað að hér er það pera sem gefur bragðið.
- 5 cl Cointreau
- 3 cl trönuberjasafi
- 2 cl nýpressaður sítrónusafi
Setjið í kokteilhristara ásamt klaka og perusneiðum. Hristið vel saman. Síið í kokteilglas. Skreytið með peru.