Jacob’s Creek Chardonnay 2011

Jacob’s Creek-vínin koma frá Suður-Ástralíu og voru upphaflega hluti af Orlando Wines en falla núna undir vínrisann Pernod Ricard. Hafa mörg af vínum Orlando verið sameinuð undir merkjum Jacob’s Creek. Grunnlínan hefur alltaf staðið fyrir sínu, þetta eru snotur og tæknilega mjög vel gerð vín.

Þetta er bjartur og afskaplega ástralskur Chardonnay, sítrus og suðrænir ávextir í nefi, þroskaður banani, ananas, ferskjur. Mjúkt, smá brennisteinn,  Gott sem fordrykkur eða t.d. með laxi og bleikju.

1.999 krónur. Góð kaup.

Deila.