Ser Piero er Chardonnay-vín frá vínsamlaginu Dalle Vigne í Toskana. Þetta er karaktermikið vín og karakterinn sækir meira til Ítalíu en sjálfrar þrúgunnar.
Sætur ávöxtur, sítrónubörkur og hvít blóm. Hunang, örlítið anis, þægilegt, með góðri sýru, ferskt og þykkt. Mjög ljúft vín.
2.199 krónur. Góð kaup.