Gran Cruor Priorat 2006

Priorat var til skamms tíma lítið og nær óþekkt svæði í Tarragona á Spáni. Víngerð í Priorar á sér aldalanga sögu en aðstæður hafa ávallt verið erfiðar og vínviðurinn vex á syllum í snarbröttum brekkum. Um tíma var víngerðin nánast að hverfa en þá „uppgötvuðu“ menn hvers lags tækifæri væru þarna. Vínin þaðan skutust skyndilega upp á stjörnuhimininn á síðasta áratug og eru nú með þeim eftirsóttustu á Spáni.

Gran Cruor 2006 er sérstakt að því leytinu til að það er gert úr þrúgunni Syrah, sem er ekki algeng á þessum slóðum. Þetta er því ekki „dæmigert“ Priorat-vín en magnað engu að síður. Hrikalega massað og dökkt vín, kraftmikið en að sama skapi fínslípað og mjúkt, allt að því rjómakennt. Dökkur plómuávöxtur og púðursykur, vanilla og viður svífur ofan á. Hyldjúpur ávöxtur í munni sem umlykur allt og yfirþyrmir eikina. Þetta er vín fyrir villibráðina og stórsteikur.

6.777 krónur.

 

Deila.