Pfaffenheim Pinot Gris 2008

Vínsamlagið í Pfaffenheim í Alsace í Frakklandi eða Cave Vinicole de Pfaffenheim et Gueberschwihr er enn eitt dæmið um að vínsamlög bænda geta verið í fremstu röð. Það var sett á laggirnar af hópi bænda árið 1957 sem vildu sameina krafta sína. Þeir telja nú 250 vínbændurnir sem standa að samlaginu.

Pfaffenheim Pinot Gris 2008 hefur margslungna angan þar sem greina má hunang, fennel og þurran sítrusbörk. Þurrt og mjúkt í munni með titrandi kryddi og löngum endi. Með sjávarréttum og hvítu kjöti.

2.395 krónur. Góð kaup.

 

Deila.