Tourelles de Longueville 2005

Tourelles de Longueville er annað vín Chateau Pichon Baron í þorpinu Pauillac í Bordeaux. Pichon Baron hefur síðustu rúma tvo áratugina verið að endurheimta stöðu sína sem eitt af bestu vínum Bordeaux þökk sé gífurlegri fjárfestingu á öllum sviðum. Þegar árgangurinn er stórkostlegur líkt og 2005 var svo sannarlega getur Tourelles de Longueville hæglega keppt í meistaradeildinni.

Liturinn er djúpur og dökkur, í nefi sultaðar plómur og sólber í bland við framandi krydd og vindlakassa – tóbak og sedrusvið – umvafið mildum reyk og leðri. Ungt, enn stíft og aristokratískt í uppbyggingu, með þéttum tannínum.

Þessu víni verður hiklaust að umhella með smá fyrirvara. Með önd, nautakjöti og villibráð.

6.399 krónur.

 

 

Deila.