Obikwa Cabernet Sauvignon 2010

Suður-Afríka lætur stöðugt meira að sér kveða og vínin þaðan koma oft verulega á óvart. Þetta er með ódýrari vínunum á markaðnum og í þessum dæmigerðu umbúðum sem njóta svo mikilla vinsælda með exótísku nafni og flöskumiða.

Innihaldið er hins vegar í finu lagi með hreinum ávexti og þokka. Sætur, seiðandi og sultaður plómu og fíkjuávöxtur, vottur af púðursykri. Ágætlega þykkt, að upplagi ungt, kröftugt og virkilega gott fyrir verðið.

1.399 krónur. Mjög góð kaup og verðið tryggir fína einkunn.

 

Deila.