Brolio-kastali hefur verið aðsetur Ricasoli-fjölskyldunnar í bænum Gaiole in Chianti frá því á miðöldum. Saga fjölskyldunnar er nátengd sögu og þróun víngerðar í Chianti líkt og lesa má um hér. Orðstír vínanna hnignaði um tíma á síðustu öld eftir að fjölskyldan seldi stóru alþjóðafyrirtæki reksturinn. Eftir að hún keypti hann til baka að ný hefur allt verið upp á við undir styrkri stjórn Francesco Ricasoli.