Brennd vín
Stundum lýkur víngerðinni ekki um leið og vínið sem slíkt er tilbúið. Í nær öllum vínræktarlöndum heims er hefð fyrir því að eima vínið þannig að úr verði sterkt áfengi sem gengur undir mismunandi nöfnum. Þekktast er það frá Cognac í Frakklandi en í öðrum héruðum Frakklands eima menn Marc, á Ítalíu eiga menn sitt Grappa, í Þýskalandi Weinbrand, á Spáni Orujo og svona mætti lengi áfram telja. Hér er fjallað um þennan hluta vínheimsins og ýmislegt annað látið fljóta með svo sem viský Skotanna.





