Viský með humri?

Það vita flestir að Skotar framleiða mörg góð viský sem hægt er að nota með ýmsum hætti.  Ein og sér, á klaka eða jafnvel  bara með teskeið af vatni til að mýkja bragðið eða þá blönduð sódavatni eða öðrum  sem ein af grunnstoðum margra kokkteila.

Að  bera fram viský með mat er hins vegar eitthvað sem fæstir hafa prófað, hvað þá með heillri máltíð þar sem nýtt viský er látið fylgja með hverjum rétti. Þetta gafst hins vegar matargestum kost á að reyna er  Peter Kjær frá Chivas Brothers stjórnaði viskýkvöldverði í Þingholti á Hótel Holti.

Kjær leiddi gesti í sannleikann í kringum viský með mat en það munu vera til viskýklúbbar víða um heim þar sem þessi leið er farin við val á drykkjarföngum. Miklu skiptir þó að para vel saman matinn og viskýið og mælti Kjær líka eindregið með því að þynna viskýið með vatni þar sem þannig nyti það sín betur með mat.

Friðgeir Ingi Eiríksson, yfirmatreiðslumeistari á Holtinu, hafði sett saman sérstakan matseðil í tilefni kvöldsins þar sem hve réttur var settur saman með það að markmiði að falla að tilteknu viský. Hann útskýrir hér hvernig hann fór að því að setja saman rétti sem gætu notið sín með viský.

Pönnusteiktur skötuselur á gulrótarflauel ásamt krydddropum með steiktum og léttreyktum humarhala

Viský: Ballantine’s. Í þessum rétti lék hunang hlutverk með gulrótinni og reykurinn í humrinum féll vel að viskýinu. Krydddroparnir innihalda krydd sem finnast í  viskýinu. Sósan er svo kraftmikil og þétt en inniheldur enga fitu.

 

Heilsteikt kálfalæri með kartöflu- og kóngasveppamauki, brasseruðum jerúsalem ætilþyrstlum og whisy sósu

 

Viský: Chivas Regal 18 ára. Kálfalærið var nuddað með grófu salti, estragoni, appelsínuberki og Chivas Regal 18 ára. Það var marinerað í 48 klst áður en það er eldað. Kóngasveppurinn og kartaflan er þétt og örlítið beiskt mauk sem spilar inní með kjötinu en sósan sameinar siðan allt á disknum sem fullkomnaði  bragðið og smellur með viskíinu. Viský er hellt útí sósuna áður en hún var borin fram og á ekki að sjóða uppá áfenginu til þess að fá það úr. Til þess að áfengið myndi ekki odd í sósunni þá er hún þeytt upp með fitu sem að balanserar pallettuna. Sósan er sett saman úr kjötsafa, grænmetissafa, karamellusmjöri og viský

 

Volg súkkulaðikaka ásamt sabayon sósu úr reyktu hvítu súkkulaði með karamellu tonka kremi og söltum whisky ís

Viský: The Glenlivet. Þarna eru öll brögðin sem mynda eina fullkomna heild að leika með viskýinu með mismunandi áferð og hitastigi

Og hver var svo niðurstaðan? Jú, þetta féll alveg ótrúlega vel saman og sýnir þá breidd sem viskýið hefur. Það er hins vegar annað mál hvort að maður muni passa sér viský með matnum næst þegar maður fer út að borða.

 

Deila.