Shawarma er vinsæl aðferð við að matreiða í Mið-Austurlöndum. Kjöt er látið liggja í kryddlegi og síðan grillað og loks skorið niður og borið fram með pítabrauði.
Þetta er einn af þessum fljótlegu, einföldu réttum sem að festast í sessi og eru eldaðir aftur og aftur ekki bara út af því að það tekur enga stund að elda þá heldur vegna þess að það er eitthvað við þá sem gerir þá svo syndsamlega góða.
Gratíneraður saltfiskur með kartöflum er vinsæll í Portúgal. Þessa útgáfu fengum við á veitingastað í San Martinho do Porto og fengum eldhúsið til að láta okkur uppskriftina í té.
að eru fjórar tegundir af lauk notaðar í þessa pastauppskrift sem annars byggir á kjötsósu sem líkir eftir sósum þar sem klassískar ítalskar pylsur eru notaðar.
Karamelliseraður laukur, rjómi og gráðaostur. Smá timjan. Þetta er ekki mikið flóknara en það en sósan hentar hvað best með grilluðu nautakjöti, t.d. ribeye eða nautalund.