Kálsalat með kóríander
Þetta er ferskt salat þar sem sætt hunangið leikur við sýruna úr lime og chilipipar gefur smá hita. Þeir sem eru mjög viðkvæmir fyrir sterkum kryddum geta minnkað chilimagnið eða sleppt því.
Þetta er ferskt salat þar sem sætt hunangið leikur við sýruna úr lime og chilipipar gefur smá hita. Þeir sem eru mjög viðkvæmir fyrir sterkum kryddum geta minnkað chilimagnið eða sleppt því.
Þetta kartöflusalat er í anda suðvesturríkja Bandaríkjanna þar sem oft gætir áhrifa frá Mexíkó. Enda er í salatinu að finna lime, kóríander og chili, allt grunnhráefni í mexíkóska eldhúsinu.
Kartöflusalat er hægt að gera á óendanlega vegu. Hér er það stökksteikt beikon sem gefur tóninn.
Ofnbakaðir tómatar og sítrónur eru tilvalið meðlæti með grilluðum fiski. Tómatarnir verða sætir og safaríkir og það sama má segja um sítrónurnar. Það er tilvalið að pressa safann úr þeim yfir fiskinn.
Þetta er gott meðlæti með lambi, nauti og grilluðu kjöti. 500 g steinseljurót og/eða hreðkur 1 skalottulaukur, saxaður smátt 2 dl rjómi 1/2 dl hvítvín ferskt timjan salt og pipar Skrælið steinseljurótina/hreðkurnar. Sjóðið ásamt 1/2 tsk af salti í fimm mínútur. Bræðið smjörið á pönnu og mýkið skalottulaukin. Bætið rótargrænmetinu út á og steikið á
Fagurgult saffranrisotto er yfirleitt kennt við borgina Mílanó á Norður-Ítalíuog er einn tignarlegasti risotto-réttur sem hægt er að bjóða upp á.
Þrátt fyrir að margir tengi ratatouille við Disney-kvikmyn í seinni tíð er engin ástæða til að gleyma hinum suður-franska grænmetisrétti sem sögupersóna myndarinnar er nefnd eftir.
Mauk þar sem grænmeti er blandað saman við valhnetur og kryddjurtir er ein af uppistöðum matargerðar Georgíu og kallast Mkhali. Hér er einföld uppskrift að rauðrófu mkhali sem er mjög bragðgott meðlæti.
Það er hægt að fá ferskan, græn aspas allt árið og yfir sumartímann er tilvalið að grilla hann. Þannig verður hann tilvalið meðlæti með grillmatnum.
Þetta búlgursalat er frábært meðlæti með til dæmis grillmatnum. Það er líka hægt að leika sér að því að nota ólíkar tegundir af grænmeti í salati. Búlgur er yfirleitt að finna í heilsudeild stórmarkaða en ef þið finnið það ekki má nota couscous í staðinn,