Pacific Rim Riesling 2009

Pacific Rim Winery er bandarískt vínhús sem sérhæfir sig í framleiðslu á hvítvínum úr Riesling-þrúgunni. Það var stofnað 1992 og upphaflega komu þrúgurnar héðan og þaðan. Síðustu árin eru hins vegar einvörðungu notaðar lífrænt ræktaðar þrúgur frá Washington-ríki.

Pacific Rim Riesling 2009 er hvítvín í sætum stíl með ávaxtatyggjói, þurrkuðum ávöxtum og niðursoðnum ferskjum í nefi. Það hefur sætleika halbtrocken-víns frá Þýskalandi og vel það en ávöxt Nýja-heimsins.

1.890 krónur.

 

Deila.