Two Oceans Shiraz 2011

Þetta er suður-afrískt rauðvín, kassavín, frá vínhúsinu Two Oceans en nafnið vísar til þess að við Góðrarvonarhöfða mætast tvö úthöf, Atlantshafið og Indlandshaf.

Vínið er berjamikið með þægilegum, svolítið krydduðum kirsuberjum og rifsberjum og mildum reyktónum. Ágætlega, mjúkt og þægilegt.

5.799 krónur fyrir þriggja lítra kassa eða sem samsvarar 1.450 krónur á 75 cl flösku. Góð kaup.

 

 

Deila.