Rocca Grande Passolo 2010

Grande Pasolo er rauðvín frá vínhúsinu Angelo Rocca & Figli á Salento-svæðinu í Púglía, syðst á Ítalíu. Dæmigert vín fyrir þetta svæði, gert úr þrúgunum Negroamaro og Primitivo.

Heitt loftslagið sem þrúgurnar eru ræktað í leynir sér ekki, ávöxturinn er mjög heitur og þroskaður, dökkur berjaávöxtur, svolítið kryddaður, þarna vottar fyrir lakkrís. Í munni hefur vínið góða fyllingu, mjög mjúkt og þægilegt. Ágætis matarvín, ekki síst með pastasósum með tómötum, s.s. Spaghetti Bolognese.

2.098 krónur.

Deila.