Parmesankartöflur

Þessar bökuðu parmesankartöflur eru mjög gott meðlæti með öllu rauðu kjöti, t.d. nautasteik, lambi og hreindýri. stórar bökunarkartöflur

  • 1 stór bökunarkartafla
  • 1/2 dós sýrður rjómi (18%)
  • 1 dl rjómi/matreiðslurjómi
  • 1 vænn skalottulaukur, fínsaxaður
  • rifinn parmesanostur
  • salt og pipar

Skerið kartöflurnar í þunnar sneiðar. Hitið vatn í potti ásamt smá salti. Þegar suðan kemur upp eru kartöflusneiðarnar settaf ofan í. Sjóðið í um 3-4 mínútur. Takið upp úr og látið standa meðan að vatnið lekur af. Fínsaxið skalottulaukinn. Blandið kartöflusneiðunum og fínsöxuðum lauknum saman í skál. Saltið og piprið. Raðið katöflusneiðunum upp í mót.  Þetta á að passa í 4 mót Annað hvort er hægt að nota stálhringi eða lítil bökunarmót. Kosturinn við stálhringina er að þá er hægt að setja fallega kartöfluköku á diskinn.

Pískið saman sýrðan rjóma og rjóma og dreifið yifr mótin. Toppið með rifna parmesanostinum. Bakið í ofni við 200 gráður í um 20 mínútur.

Deila.