Casillero del Diablo eru klassísk Chile-vín frá stærsta framleiðanda landsins og raunar er Concha y Toro eitt stærsta vínhús í heimi. Vinsældir vínanna má ekki síst rekja til mjög stöðugra og mikilla gæða á toppverði. Reserva Privada úr Casillero del Diablo-línunni er skörinni ofar sett en hin hefðbundnu, blanda af Cabernet Sauvignon og Syrah sem hefur legið í sextán mánuði í franskri og amerískri eik áður en vínið fer á flöskur.
Þetta er auðvitað ungt vín, liturinn mjög dökkur og djúpur, svart-fjólublár og í byrjun er það fyrst og fremst kröftugur, ungur ávöxtur og viður sem kemur fram, sólber og krækiber. Það hefur gott af því og þarf helst að fá að anda smá og þá kemur ýmislegt annað í ljós, bakaður ávöxtur, þykk vanilla og pipruð kryddangan, reykur og vindlatóbak. Uppbygging er þétt, það er vel strúkturað en áferðin mjúk og þægilegt.
Með grilluðu kjöti, ekki síst nauti.
2.699 krónur. Mjög góð kaup.