Vina Maipo Chardonnay 2012

Chile er að verða einhver helsta uppspretta ódýrra en ágætra vína og Vina Maipo er eitt þeirra vínhúsa sem einbeitir sér að því að setja vín á góðu verði á markaðinn. Hér er það hvítvín í þriggja lítra boxi úr Chardonnay-þrúgunni.

Mildur ávöxtur i nefi, léttur, vottur af sítrónu, geri, hitabeltisávöxtum, vanillu. Létt fylling í munni og mild sýra. Ágætis vín fyrir verðið.

5.699 krónur eða sem samsvarar 1.425 krónum á 75 cl flösku. Góð kaup.

Deila.