Columbia Crest Grand Estates Merlot 2009

Vínhéruðin í Washington-ríki í norðausturhluta Bandaríkjanna kunna að vera nyrst í Bandaríkjunum en engu að síður á svipaðri breddargráðu og Bordeaux í suðvesturhluta Frakklands. Bordeaux-þrúgurnar Cabernet Sauvignon og ekki síður Merlot þrífast glíma glimrandi. Columbia Crest er eitt stærsta vínhús Washington-ríkis og Grand Estates línan er vönduð og „hagstæð“.

Þetta er fimm ára vín og er á frábæru róli núna. Farið að mýkjast en alls ekki komið með mjög „þroskuð“ einkenni. Sætur rauður berjasafi,kirsuber, trönuber,  kókos, töluverð vanilla,  brenndur sykur,“cappucino“, míneralískt, mjög mjúkt, kröftugt og pólerað, sýra í lokin sem gefur víninu ferskleika og bit. Fínt með rauðu kjöti – ekki síst grilluðu þegar þar að kemur.

2.999 krónur. Góð kaup.

Deila.