Þegar vín eru annars vegar hefur skammstöfunin GSM auðvitað ekkert með farsímatækni að gera heldur táknar að um sé að ræða þrúgublönduna Grenache, Syrah og Mourvédre. Þótt þetta séu allt hinar hefðbundnu þrúgur Suður-Frakklands voru það Ástralir sem að komu þessari skammstöfun á kortið. Hér er hins vegar ekta og hörkugóður GSM frá Languedoc ísuðurhluta Frakklands, einnar ekru vín frá Paul Mas.
Liturinn er mjög dökkur, rauður og djúpur. Mjög þykkur ávöxtur í nefinu, bláber, krækiber, plómur, smá sprittað, þétt og rjómamikið í munni, nokkuð kryddað og míneralískt í lokinn með kröftugum, tannískum strúktúr.
2.650 krónur. Frábær kaup á því verði.