Þetta vín var lengi þekkt undir nafninu Tenuta Marchesi Antinori en því nafni hefur nú verið breytt í Tenuta Tignanello. Tenuta er búgarður umlukinn vínekrum, ekki ósvipað því sem að Frakkar myndu kalla Chateau. Tenuta Tignanello er hjartað í vínveldi Antinori-fjölskyldunnar og þar er að finna tvær af þekktustu vínekrum Ítalíu, Tignanello og Solaia auk þess sem þrúgur af Tenuta-eigninni eru notaðar í þetta sígilda Chianti Classico-vín.
2012 árgangurinn af Tenuta Tignanello endurspeglar þetta heita sumar í Toskana, ávöxturinn er þroskaður, dimmur, djúpur, svört ber og súkkulaði, mild krydd, negull, mjúk tannín, þykkt. Vín fyrir rautt kjöt.
3.999 krónur. Góð kaup.