Domaine Jaume Cotes du Rhone 2014

IMG_1672Það er ekki það sama Cotes du Rhone og Cotes du Rhone enda ansi margir lítrarnir sem framleiddir eru undir merkjum þessarar þekktu „appelation“. Domaine Jaume er lítið gæðavínhús á besta svæði Cotes du Rhone og það endurspeglast í þessu víni.

Fallega rautt á lit, bjartur, rauður, ferskur og tær ávöxtur, þroskuð hindber, rifsber, Ávöxturinn er svalur, svolítið kryddaður, tannín fínleg, vínið þétt og fínlegt. Þetta er vín sem vex og vex, reynist verulega dýpra en maður heldur í fyrstu, unaðslegt matarvín.

2.990 krónur. Frábær kaup.

Deila.