Tourelles er vín númer tvö frá Chateau Pichon-Longueville einu af bestu vínhúsum Bordeaux. Ekrur Pichon eru með þeim bestu í þorpinu Pauillac og undanfarin áratug hafa átt sér stað gífurlegar breytingar bæði á ekrunum og víngerðarhúsinu til að tryggja víninu frá Pichon þann sess sem það ber. Þrúgurnar í stóra vínið fara eru nú einungis af tiltölulega litlu svæði ekrunnar sem liggur hvað hæst og er með svipaða jarðfræði og nágranninn Latour. Þrúgur af öðrum svæðum ekrunnar fara nú í Tourelles og gæði Tourelles eru nú að mörgu leyti sambærileg við gæði Chateau-vínsins fyrir rúmum áratug. Þetta er sem sagt hörkuvín af einni bestu Grand Cru ekru Bordeaux.
Árgangurinn 2009 var stórkostlegur í Bordeaux en hjá einstaka vínhúsum var 2010 ennþá betri og Pichon-Longueville er eitt þeirra. Það eru margir þeirrar skoðunar að þetta sé besti árgangur sem framleiddur hefur verið í Pichon. Það er ekkert „annað“ við þetta vín, þetta er stórt mikið og tignarlegt vín. Hrein, tær angan af sólberjum, plómur, reykur, krydd, vottur af tóbakslaufum, flottur strúktúr, tignarleg tannínuppbygging. Hágæða Pauillac.
8.899 krónur. Frábært vín. Með rjúpu, hreindýri, önd og öllu öðru góðu. Má alveg geyma í all nokkur ár.
-
10