Hvíta Apothic-vínið frá Kaliforníu er að mörgu leyti steypt í sama mót og það rauða. Þetta er tiltölulega óvenjuleg blanda af þrúgum, í þessu tilviki Chardonnay, Riesling og Pinot Grigio Rétt eins og hið rauða er þetta tæknilega vel gert vín, með áherslu á kraft, mikinn ávöxt og töluverða sætu.
Í nefinu er sætur, suðrænn, sultaður ávöxtur, sæt hvít ber, apríkósur, sætt í munni og þykkt. Þetta er tæknilega vel gert vín fyrir þá sem vilja vínin ekki of þurr. Hins vegar líklega í sætara lagi fyrir þá sem eru vanir þurrari vínum.
70%
1.999 krónur
-
7