Peter Lehmann Futures Shiraz 2012

futures 2012Fyrsta vínið sem Peter Lehmann framleiddi var kallað “Futures” og var selt í eins konar framvirkum viðskiptum til vina og kunningja sem vildu styðja við bakið á honum og voru reiðubúinn að borga vínið þótt þau fengu það ekki afhent fyrr en tveimur árum síðan. Nú er Lehmann með öflugustu framleiðendum Ástralíu og vínið sem ber nafnið Futures skipar ávallt sérstakan sess í framleiðslu fyrirtækisins.

Nokkuð dökkt, mjög kryddaður ávöxtur, brómber, plómur, þurrkaðir ávextir, piprað, súkkulaði, heitt, nokkuð kröftugt með þykkum og mjúkum ávexti, fínleg tannín.

80%

3.199 krónur. Mjög góð kaup. Með jafnt grillkjöti sem jólamat.

  • 8
Deila.