Pouily-Fuissé-vínið frá Bouchard hefur í gegnum árin verið fyrstu kynni margra Íslendinga af Búrgundarvínum. Chardonnay-vínin frá þessu litla þorpi í suðurhluta héraðsins virðast henta hinum íslenska smekk einstaklega vel enda eru þetta hin prýðilegustu vín með góðu sjávarfangi.
Gullið á lit, eikin er framarlega í nefi en mild, sítrus og ferskjur, blóm, nokkuð míneralískt, þykkt og nokkuð feitt í munni, fersk og góð sýra.
80%
3.999 krónur. Góð kaup. Með sjávarfangi, t.d. grilluðum humar.
-
8