Chateau Agassac er frábært lítið Chateau á svæðinu Haut-Médoc í Bordeaux rétt norður af borginni sjálfri. Þó að það sé ekki inni á „stóru“ svæðuvnum í Médoc þá gefur þetta vín þó mörgum „stærri“ vínum lítið eftir fyrir einungis brot af verðinu. Þessi 2014 árgangur er frábær, klassískur Médoc með flottum sólberjaávexti og tóbakslaufum, eik sem leikur við ávöxtinn og tannín sem að gefa víninu tignarlegan og fínan strúktúr. Þetta er vín sem er yndislegt núna en má líka vel geyma í einhver ár, Agassac þolir það meira en vel.
100%
3.699 krónur. Frábær kaup, lækkun um mörg hundruð krónur frá í fyrra. Eins og alltaf tekur einkunn mið af verði og þessi árgangur fær fullt hús stiga fyrir vín í þessum verðflokki. Með hreindýri og nautalund.
-
10