Flöskur í tvöfaldri stærð eru kallaðar „magnum“-flöskur og hafa marga kosti. Í stórum matarboðum þar sem þarf meira en eina flösku er tryggt að ekki sé blæbrigðamunur á víninu á milli flaskna og síðan er ansi hreint tignarlegt að setja magnum-flösku á borð. Ekki spillir heldur fyrir að vín þroskast betur og geymast í stærri flöskum en minni.
Ripasso eru vín frá Valpolicella í Veneto þar sem hratið sem verður afgangs við gerð Amarone-vína er blandað saman við vínlöginn við gerjun og gefur þeim meiri dýpt. Liturinn á þessu víni ljósrauður, í smá þroski, í nefi þurrkaðir ávextir, rúsínur,þurrkaður túrmerik örlitið piprað, milt og mjúkt.
70%
Mjög góð kaup. Með kalkún.
-
7